Greinasafn fyrir flokkinn: Fundargerðir

Aðaldundur 2019.

Aðalfundur félags sumarhúsaeigenda við Langá verður haldinn í Langárbyrgi, veiðihúsinu við Langá laugardaginn 8 júní 2019 kl 10.00 Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin

SNJÓRUÐNINGUR

Samkvæmt upplýsingum frá snjóruðningsfulltrúa Borgarbyggðar er áformað að ryðja Jarðlangstaðaveginn #536 í dag. Þar sem töluvert snjófjúk er svæðinu, hefur fulltrúinn áhyggjur af því að færð ‘gæti’ spillst í kjölfarið.

Míralína-Rafmagnslaust

Rafmagnslaust verður á Mýralínu frá Tungulæk að Borg og Fíflholtum mánudaginn 21.01.2019 frá kl 13:00 til kl 17:00 vegna tenginga á háspennustrengjum.
Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma undir lok straumleysis vegna prófunar
Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9390.

Rafmagnslaust.

Rafmagnslaust verður á Mýralínu frá Tungulæk að Borg og Fíflholtum á morgun 16.01.2019 frá kl 13:00 til kl 17:00 vegna tengingar á háspennustreng og spennistöð.
Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma undir lok straumleysis vegna prófunar
Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9390.

Rafmagnslaust.

Rafmagnslaust verður á Mýralínu Vatnshömrum að Fíflholtum aðfaranótt 21.12.2018 frá kl 00:00 til kl 06:00 vegna tenginga á háspennustrengjum og rofastöð. Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma undir lok strumleysis vegna prófunar. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Vestrulandi í síma 528 9390.

Rafmagnslaust.

Rafmagnslaust verður á Mýralínu frá Tungulæk að Fíflholtum 11.09.2018 frá kl 13:00 til kl 17:00 vegna tengingar á háspennustreng og spennaskipta.
Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma undir lok straumleysis vegna prófunar
Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9390.

Rafmagnsbilun.

Rafmagnsbilun er í gangi á Mýralínu, verið er að leita að bilun. Verið er að undirbúa að koma rafmagni á eftir öðrum leiðum.
Ef þú hefur einhverjar upplýsingar sem gætu hjálpað við bilanaleit hafðu þá vinsamlega samband við Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9390

RARIK auglýsing.

Rafmagnslaust verður á Mýralínu að Fíflholtum og álmu að Eskiholti að Litlu Gröf 10.08.2018 frá kl 01:00 til kl 04:00 vegna vinnu í aðveitustöð Vatnshömrum.
Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma undir lok straumleysis vegna prófunar.Sjá nánar á www.rarik.is/tilkynningar
Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9390.

Grugg í neysluvatni.

Orðið hefur vart við grugg í neysluvatni okkar undanfarna daga.

Samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitunni gerðist það í síðustu viku að RARIK tók tímabundið rafmagn af dælustöð við Seleyri, en þaðan kemur u.m.þ.b. 90% af okkar neysluvatni og rest frá Grábrókarhrauni. Þannn tíma sem dælustöðin fékk ekki rafmagn kom allt vatn frá Grábrók. Vatnið sem kemur frá Grábrók er með meira gruggi en Seleryrin og því mun þetta hafa gerst.

Núna sýna mælingar á gruggi að vatnið bæði vð Seleyri og Borgarnes er nánast alveg tært, eða 10% af leyfilegu gildi.

Mistök: innheimtukrafa í heimabanka

AÐ GEFNU TILEFNI:

 

Formaður Landssambands sumarhúsaeigenda hefur beðið mig að koma á framfæri við félagsmenn okkar  afsökun á þeim mannlegu mistökum sem urðu við útsendingu innheimtukrafna í heimabanka.
Bestu kveðjur
Lárus Atlason