Félag sumarhúsaeigenda við Langá.
Samþykktir
1. gr.
Heiti félags
Félagið heitir. Félag sumarhúsaeigenda við Langá. Varnarþing þess er hjá Héraðsdómi Vesturlands.
2. gr.
Stofnun félags
Félagið er stofnað í samræmi við 17.gr. laga nr 75\2008, um frístundabyggð og leigu lóða undir frístundahús.
Félagssvæðið er í landi Jarðlangsstaða við Langá á Mýrum.
3. gr.
Félagsmenn
Félagsmenn eru allir þeir sem hafa umráð yfir lóð undir frístundahús á svæðinu.
Sama gildir um umráðamenn lóða án húss.
Eigendaskipti á lóð á svæðinu skal tilkynna stjórninni.
4. gr.
Hlutverk
Hlutverk félagsins er:
- Gerð og rekstur á sameiginlegum svæðum í frístundabyggðinni, svo sem leiksvæðum og o.þ.h .
- Gerð og rekstur á sameiginlegum vatnsveitum og fráveitum.
- Gerð og viðhald sameiginlegrar girðingar um svæðin.
- Uppsetning og rekstur öryggiskerfa.
- Að setja almennar samskipta og umgengisreglur innan frístundabyggðarinnar.
5. gr.
Tilgangur
Tilgangur félagsins er:
- Að gæta hagsmuna félagsmanna gagnvart stjórnvöldum vegna mála er varðar lóðahafa og frístundabyggðina.
- Að vinna að hvers konar sameiginlegum hagsmunum félagsmanna .
- Að stuðla að og fylkjast með góðri umgengi og náttúruvernd á félagssvæðinu.
- Að vinna að auknu öryggi félagsmanna.
6. gr.
Skipun stjórnar
Stjórn félagsins skipa fimm aðilar úr hópi félagsmanna sem kjörnir eru til eins árs í senn á aðalfundi og tveir varamenn.
Formaður skal kjörinn sérstaklega, en stjórnin skiptir að öðru leiti með sér verkum
Þannig að einn sé ritari, einn gjaldkeri og aðrir meðstjórnendur.
Endurskoðendur ársreikninga skal kjósa til eins árs.
Boða skal varamann til stjórnarfundar þegar aðalmaður boðar forföll eða þegar stjórnarmaður óskar þess.
7. gr.
Aðalfundur
Aðalfund skal halda fyrir 1. september. Fer hann með æðsta vald í málefnum félagsins.
Aðalfund skal stjórnin boða bréflega til umráðamanna frístundalóða með a.m.k. tveggja
vikna fyrirvara. Boða má fund með tölvubréfi .
Í fundarboði skal tilgreina fundartíma, fundarstað og dagskrá. Þá skal geta þeirra mála
sem ræða á og samantekt á efni þeirra tillagna er leggja á fyrir.
Fundurinn telst lögmætur ef minnst þriðjungur félagsmanna sækir fundinn.Ef tilskilinn fjöldi félagsmanna mætir ekki á löglega boðaðan fund skal hann endurtekinn eftir skriflega boðun, með að lágmarki viku fyrirvara, og telst hann þá lögmætur með þeim
fjölda félagsmanna er mæta í seinna skiptið.
Dagskrá aðalfundar.
- Skýrsla stjórnar.
- Endurskoðaðir reikningar.
- Kosning formans
- Kosning stjórnar.
- Kosning meðstjórnenda.
- Kosning skoðunnarmanna ársreikninga og varamanns.
- Rekstrar og framkvæmdaáætlun næsta árs.
- Árgjald félagsins ákveðið.
- Mál sem tiltekinn eru í fundarboði.
- Önnur mál
Hafi stjórn ekki boðað til aðalfundar 1. oktober er þeim félagsmönnum sem vilja halda fund heimilt að boða hann í samræmi við 1.mgr. og kjósa nýja stjórn er telst rétt kjörin í stað fyrri stjórnar.
8. gr.
Atkvæði
Eitt atkvæði fylgir hverri lóð undir frístundahús og fer tilgreindur umráðamaður með atkvæðisréttinn.
Meirihluti atkvæða ræður úrslitum mála annara en þeirra sem fjallað er um í 11. gr.
9. gr.
Skipting kostnaðar og lögveð
Kostnaður skiptist að jöfnu og ræðst að fjölda lóða undir frístundahús á félagssvæðinu.
Umráðamaður lóðar er skylt að greiða sinn hluta kostnaðar sem hlýst af ákvörðun er löglega hefur verið tekin.
Greiði félagsmaður ekki hlutdeild sína í sameiginlegum kostnaði og í félagssjóð á gjaldaga eignast félagið lögveð í eign hans á félagssvæðinu, þ.m.t. í leigulóðarsamningi, til tryggingar kröfunni.
Lögveð nær einnig til vaxta og innheimtukostnaðar af kröfunni ef því er að skipta.
Lögveðinu skal fylgja eftir með lögsókn eða því lýst við nauðungarsölu innan árs frá stofnun þess.
Viðurkenning eigenda utan réttar nægir ekki til að rjúfa fyrningu.
10. gr.
Fundarseta
Rétt til fundarsetu hafa félagsmenn ,makar þeirra og sambúðaraðilar. Félagsmaður má veita lögráða manni umboð til að mæta á fundi og greiða atkvæði. Skal umboðsmaður leggja fram á fundinum skriflekt og dagsett umboð. Slíkt umboð má hvenær sem er afturkalla.
Þegar tveir eða fleiri eigendur eða leigjendur eru að sömulóð skulu þeir tilkynna stjórn félagsins hver skuli teljast umráðamaður hennar samkvæmt samþykktum þessum og fer með atkvæðisrétt,fær fundarboð og kröfu um greiðslu gjalda til félagsins.
11. gr.
Serstakar ákvarðanir
Ef lögð er fram tillaga á fundi félagsins samkvæmt auglýstri dagskrá í fundarboði um að ráðast í framkvæmdir eða stofna til kostnaðar sem leiða til útgjalda sem er umfram venjulegan rekstrarkostnað félagsins skal sú tillaga talin samþykkt hljóti hún minnst 2\3 hluta greiddra atkvæða og minnst þriðjungur félagsmanna sæki fundinn.
12. gr.
Valdsvið stjórnar
Stjórn fer með æðsta vald í málefnum félagsins á milli aðalfunda. Stjórnin getur boðað til félagsfunda eins oft og þurfa þykir. Til funda skal boða bréflega með tveggja vikna fyrirvara á sama hátt og aðalfund. Skylt er að boða til félagsfundar ef fjórðungur félagsmanna krefst þess skriflega. Stjórnin getur ekki bundið félagsmenn fjárhagslega.
13. gr.
Gerðarbók
Stjórn félagsins skal halda gerðarbók yfir bæði stjórnar og félagsfundi. Í fundargerðarbók skal skrá yfirlit yfir allt það sem gerðist á félagsfundi og ákvarðanir hans. Fundargerðin skal undirrituð af ritara fundar og fundarstjóra.Fundargerðin er síðan full sönnun þess sem fram hefur farið á fundum.Sama gildir um fundi stjórnarinnar. Á fundum félagsins skulu allir félagsaðilar eða umboðsmenn þeirra er sitja fundinn skrá nafn sitt fundargerðarbók eða fundarsóknarbók og fyrir hvaða lóð eða bústað þeir sitja fundinn. Fundargerð hvers félagsfundar,samþykktan ársreikning og félagaskrá má senda til félagsmanna ef þess er óskað innan þriggja vikna frá fundi á tölvupóstfang eða bréflega.
14. gr.
Nefndarskipun
Stjórninni er heimilt að skipa nefndir til serstakra verkefna ef henni þykir ástæða til.
15. gr.
Árgjald og gjalddagi
Árgjald skal vera á hvert frístundahús eða frístundahúsalóð og skal upphæðin ákveðið á aðalfundi.Gjalddagi árgjalds skal vera 1 júní og eindagi 15 dögum síðar.Gjalddagi framkvæmdagjalds sem ákvarðað er skv 11.gr skal vera tilgreint við samþykkt þess.
16. gr.
Reikningsárið
Reikningsár félagsins er almanaksárið.
17. gr.
Slit félagsins
Ef ekki er lengur tilgangur fyrir tilvist félagsins má slíta því með einföldum meirihluta og ákveður fundurinn ráðstöfun eigna sem félagið kann að eiga.Boða skal sérstaklega til fundarins vegna tillagna um niðurlagningu félagsins.
18. gr.
Þinglýsing samþykkta
Stjórn félagsins skal hlutast til um að samþykktum þessum sé þinglýst á allar fasteignir og lóðasamninga sem tilheyra félagssvæðinu svo og breytingum sem kunna vera gerðar á þeim.
19. gr.
Breytingar á samþykktum
Breytingar á samþykktum þessum verða aðeins gerðar á aðalfundi.Tillaga um breytingu verður einungis tekin til afgreiðslu að hún hafi verið kynnt í aðalfundarboði og hljóti samþykki minnst 2\3 hluta greiddra atkvæða og minnst helmingur félagsmanna sæki fundinn.