Góðan daginn kæru viðskiptavinir.
Mánudaginn 11. apríl verður byrjaða að skola út aðveituæð Grábrókarveitu sem liggur fá dælustöðinni í Grábrókarhrauni og niður að Borgarnes.
Þessa útskolun er gerð að jafnaði á sex mánaða fresti og er það gert til að skola grugg úr aðveitulöglögninni en þetta er gert til að tryggja eins hreint neysluvatn og kostur er á til viðskiptavina okkar.
Búast má við að verkið taki um tvær vikur frá 11 apríl til 21 apríl. Þeir íbúar sem búa Borgarnesmegin við Galtarholt verða væntanlega ekki varir við vinnu Veitna fyrr en 17 apríl til 21 apríl.
Á verktímanum má búast við lægri/lágum þrýsting á kaldavatninu meðan á útskolun stendur, einnig má búast við einhverju gruggi í vatninu.
Veitur vona að viðskiptavinir okkar sýni þolinmæði og umburðarlyndi í þessari vinnu okkar enda eru þeir farnir að þekkja þetta ferli sem hefur verið gert undanfarin ár.