Greinasafn fyrir flokkinn: Fundargerðir

Aðalfundur Félags sumarhúsaeigenda við Langá 2023.

Aðalfundur Félags sumarhúsaeigenda við Langá.

        26. ágúst 2023 í Borgarnesi.

Formaður setti fund kl: 14 og bauð fundarmenn velkomna og gerði að tillögu sinni að Harald B Alfreðsson yrði fundarstjóri og Fjóla Svavarsdóttir yrði ritari. Báðar tillögurnar voru samþykktar.

Til fundarins var löglega boðað, á Facebook og einnig á heimasíðu félagsins www.jard.is.

Fundarstjóri kannaði lögmæti fundarins þ.e.a.s. hvort að minsta kosti 1/3 félagsmanna sé mættur, en mættir eru 18 aðilar ásamt Fanneyju Einarsdóttir sem fer með 30 umboð, en u.þ.b 30 manns eru mættir á fundinn. Í samræmi við ákvörðun á undaförnum aðalfundum leggur fundarstjóri til að haldi verði áfram með fundinn, þrátt fyrir að hann sé ekki lögmætur, enda engin stórmál sem liggja fyrir. Tillagan var samþykkt

Fundarstjóri bar upp til samþykkis síðurstu fundargerð aðalfundar, en hún hefur verið aðgengileg á heimasíðu félagsins frá því fljótlega eftir síðasta aðalfund og var hún samþykkt.

Fundarstjóri les upp dagskrá fundarins:

  • Skýrsla stjórnar
  • Reikningar félagsins og vatnsveitu bornir upp til samþykkis
  • Kosning stjórnar
  • Kosning meðstjórnarmanna og varamanna
  • Rekstrar og framkvæmdaáætlun
  • Ákvörðun árgjalds
  • ●       Önnur mál

1. Skýrsla stjórnar. Formaður Jón Elvar Guðmundsson las skýrslu:

Í stjórn sitja:

Jón Elvar Guðmundsson, formaður

Lárus Atlason

Arinbjörn Friðriksson

Fjóla Svavarsdóttir

Harald B. Alfreðsson

Varamenn í stjórn:

Samúel Guðmundsson

Lilja Theodórsdóttir

2.   Skoðaðir reikningar félagsins og vatnsveitunnar lesnir upp.

Fjóla Svavarsdóttir gjaldkeri fór yfir reikningana.

Innkomin gr. Félagsgjöld 2022                              534.000

Gr. Félagsgjald v/2022                                               6.271

Innkomnir drv.                                                               362

Vextir af reikningi Landsb.                                       17.547

                        Samtals  Kr:                                      558.180

Gr.v/Internet                                                               6.293

Kaffi og kex v/aðalfund                                             3.089

Þjónustugj.banki,uppfærsla innh.                         40.105

Fjármagnstekjuskattur                                              3.860

                                           Samtals  Kr:                     53.347

Rekstrarafgangur                                        Kr:      504.833

Inneign á bók 31. Des 2022                       Kr: 4.100.590

Vatnsveita

Árið 2022 tengdist 1 nýr við vatnsveituna.  463.986

Vextir af reikningi                                      Kr:  183.360

Fjármagnstekjuskattur                             Kr:   40.339

Inneign á bók vatnsveitunnar 31 des 2022     Kr: 7.199.658

Skýrsla stjórnar og reikningar félagsins og vatnsveitu bornir upp til samþykktar og samþykkt samhljóða.

3. Kosning formanns.

Jón Elvar Guðmundsson gefur áfram kost á sér.

Og var hann samþykktur sem formaður áfram.

4.  Kosning stjórnar.

Lárus Atlason, Arinbjörn Friðriksson, Fjóla Svavarsdóttir og Harald B Alfreðsson gefa áfram kost á sér í stjórn og samþykkt með lófaklappi.

5.  Kosning varamanna í stjórn.

Samúel Guðmundsson og Lilja Theodórsdóttir tilnefnd og samþykkt með lófaklappi.

6.  Kosning skoðunarmanna ársreikninga.

Margrét G Andrésdóttir og Halldóra F Þorvaldsdóttir tilnefndar og samþykktar með lófaklappi.

7.  Rekstrar og framkvæmdaráætlun næsta árs.

Engar framkvæmdir eru fyrirhugaðar aðrar en að koma upp eftirlitsmyndavél.

8. Árgjald félagsins.

Ákveðið var að halda árgjaldi óbreyttu, kr. 4.000.-

9. Önnur mál.

  • Brunahani. Nefndur, athugað hvort það þurfi að athuga með stöðu á honum og hvort bæta þurfi við.  Verður rætt við slökkviliðið.
  • Kort með leiðum.  Lagt til að setja inn á heimasíðuna kort af leiðum á svæðinu.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl 14.30

Fjóla Svavarsdóttir ritaði fundargerð.

Rafmagnstruflanir.

Rafmagnslaust verður á Mýrarlínu frá Ferjubakka að Fíflholti 20.09.2023 frá kl 17:00 til kl 17:30 Vegna strengvæðingar. Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma undir lok straumleysis vegna prófunar Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9000 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof

Aðalfundur 2023.

Aðalfundur 2023 verður haldinn laugardaginn 26. ágúst kl. 14 á B59 Hótel í Borgarnesi. Hefðbundin aðalfundarstörf auk umræðu um vatnsmál fyrir þá sem eru í vatnsfélaginu.
Ef einhverjir hafa tillögur fyrir fundinn vinsamlegast hafið samband við mig.

Jón Guðmundsson, formaður jegudmundsson@simnet.is

Ruslagámar

Samkvæmt upplýsingum frá Íslenska gámafélaginu í dag eru ruslagámarnir hreinsaður ALLA föstudaga, þeim var tilkynnt um að þeir væru yfirfullur. Þá var einnig haft samband við Björgunarsveitina Brák en þeir eru með flösku söfnunargáminn.

Rotþróa hreinsun í ár.

„Rotþrær á svæðinu verða hreynsaðar vikuna sem byrjar 14. ágúst af Hreynsitækni. Vinsamlega hafið hlið ÓLÆST þá vikuna til að tryggja óhindrað aðgengi verktaka“.

Rafmagnstruflanir.

Rafmagnstruflun verður frá Ferjubakka að Langáá á Mýrum og Borgarhrepp 05.07.2023 frá kl 11:00 til kl 11:30 og aftur á milli 15:00 til kl 17:00 í stutta stund.
Vegna viðhalds á dreifikerfi Rarik.
Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma undir lok straumleysis vegna prófunar
Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9000 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof

Rafmagnstruflanir.

Rafmagnstruflanir verða frá Ferjubakka að Fíflholti og Hítardal 27.06.2023 frá kl 10:00 til kl 10:30 og aftur kl 16:00 til kl 16:30 vegna breytingar á dreifikerfinu . Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9000 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof

Útskolun úr Grábrókarveitu.

Góðan daginn kæru viðskiptavinir.

Mánudaginn 11. apríl verður byrjaða að skola út aðveituæð Grábrókarveitu sem liggur fá dælustöðinni í Grábrókarhrauni og niður að Borgarnes.

Þessa útskolun er gerð að jafnaði á sex mánaða fresti og er það gert til að skola grugg úr aðveitulöglögninni en þetta er gert til að tryggja eins hreint neysluvatn og kostur er á til viðskiptavina okkar.

Búast má við að verkið taki um tvær vikur frá 11 apríl til 21 apríl.  Þeir íbúar sem búa Borgarnesmegin við Galtarholt verða væntanlega ekki varir við vinnu Veitna fyrr en 17 apríl til 21 apríl.

Á verktímanum má búast við lægri/lágum þrýsting á kaldavatninu meðan á útskolun stendur, einnig má búast við einhverju gruggi í vatninu. 

Veitur vona að viðskiptavinir okkar sýni þolinmæði og umburðarlyndi í þessari vinnu okkar enda eru þeir farnir að þekkja þetta ferli sem hefur verið gert undanfarin ár.

Rafmagnstruflun

Rafmagnstruflun verður í landskerfinu út frá aðveitustöð Vatnshömrum, í Borgarfirði og á Mýrum milli kl 01:30 – 02:30 aðfaranótt miðvikudags, 5.4.2023, vegna vinnu Landsnets í flutningskerfinu.
Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9000 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof

Útskolun á aðveituæð Grábrókarveitu.

Mánudaginn 10 október verður byrjaða að skola út aðveituæð Grábrókarveitu er liggur fá dælustöðinni í Grábrókarhrauni og niður að Borgarnes og upp á Bifröst.

Þessa útskolun er gerð að jafnaði á sex mánaða fresti og er það gert til að skola grugg úr aðveitulögninni en þetta er gert til að tryggja eins hreint neysluvatn og kostur er á.

Búast má við að verkið taki um tvær vikur frá 10 október til 21 október.  Þeir íbúar sem búa Borgarnes megin við Galtarholt verða væntanlega ekki varir við vinnu Veitna fyrr en 17 október til 21 október.

Á verktímanum má búast við lægri þrýsting á kaldavatninu og einnig má búast við einhverju gruggi í vatninu.  í einhverjum tilfellum gæti orðið vatnslaust í skamman tíma hjá einstaka notendum

Veitur vona að viðskiptavinir sýni okkur þolinmæði og umburðarlyndi í þessari vinnu okkar enda eru þeir farnir að þekkja þetta ferli sem hefur verið gert undanfarin ár.

Kær kveðja,

Gissur Þór Ágústsson

Sérfræðingur í rekstri vatns-, hita- og fráveitu
Vatnsveita og fráveita / Veitur